Bótaskylda viðurkennd eftir alvarlegt vinnuslys eftir að armur steypudælu féll á mann

Með dómi Landsréttar 26. maí 2026 í máli nr. 399/2025 var viðurkennd bótaskylda VÍS vegna alvarlegs vinnuslyss sem umbjóðandi TORT varð fyrir við brúarsmíði í nóvember 2021.

Slysið varð þegar umbjóðandi TORT vann við steypuvinnu við byggingu brúar. Við verkið var notaður steypudælukrani sem var í útréttri stöðu þegar hluti kranans gaf sig skyndilega og féll ofan á tjónþola. Klemmdist hann á milli kranans og steypumóts og hlaut alvarlega áverka.

VÍS hafnaði bótaskyldu úr ábyrgðartryggingu eiganda steypudælukranans á þeim grundvelli að ekki hefði verið sýnt fram á að slysið mætti rekja til saknæmrar háttsemi eða vanrækslu eiganda kranans eða starfsmanna hans. Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum staðfesti þá afstöðu tryggingafélagsins.

Málið hafði áður verið til meðferðar hjá annarri lögmannsstofu, þar sem ekki var talinn grundvöllur til frekari málareksturs. Tjónþoli leitaði í kjölfarið til TORT sem taldi rétt að láta reyna á bótaskyldu tryggingafélagsins fyrir dómstólum.

TORT höfðaði því mál fyrir hönd tjónþola til viðurkenningar á bótaskyldu. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði VÍS af kröfum tjónþola, en niðurstöðunni var áfrýjað til Landsréttar.

Við meðferð málsins kom fram að sami steypudælukrani hafði gefið sig með sambærilegum hætti árið 2016. Þá lá fyrir að ekki hafði farið fram fullnægjandi rannsókn á orsökum slyssins árið 2021 og að kraninn hafði verið seldur úr landi skömmu eftir slysið. Af þeim sökum var tjónþola ókleift að afla frekari sönnunargagna um nákvæma orsök bilunarinnar.

Landsréttur taldi að við þessar aðstæður hefði staðið eiganda kranans nær að upplýsa um ástand hans og orsakir slyssins. Var tryggingafélagið því látið bera hallann af skorti á sönnun um þau atriði sem gátu haft áhrif á sakarmat og orsök slyssins.

Þar sem VÍS hafði ekki tekist að sýna fram á að slysið yrði ekki rakið til saknæmrar háttsemi eiganda kranans eða starfsmanna hans var krafa tjónþola tekin til greina og bótaskylda viðurkennd úr ábyrgðartryggingu eiganda kranans.

Dómurinn undirstrikar mikilvægi sönnunarreglna í skaðabótamálum, sérstaklega þegar tjónþoli hefur ekki sömu möguleika og gagnaðili til að afla gagna um orsakir slyss. Jafnframt sýnir málið að höfnun tryggingafélags, jafnvel þótt hún hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd, þarf ekki að fela í sér endanlega niðurstöðu um bótarétt tjónþola.

Ólafur Örn Svansson lögmaður flutti málið fyrir hönd tjónþola.

Unnt er að lesa dóminn í heild sinni á heimasíðu Landsréttar hér.