Útlagður kostnaður
Samkvæmt 1. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 getur tjónþoli átt rétt á endurgreiðslu útlagðs kostnaðar sem rekja má til bótaskylds tjóns.
Lögmenn TORT annast kröfugerð og innheimtu slíks kostnaðar gagnvart tryggingafélögum. Endurgreiðsla er háð því að bótaskylda hafi verið viðurkennd og kostnaður staðfestur með frumritum reikninga.