Þjáningabætur
Samkvæmt skaðabótalögum nr. 50/1993 getur tjónþoli átt rétt á þjáningabótum frá tjónsatburði þar til heilsufar tjónþola er orðið stöðugt, sbr. 3. gr. skaðabótalaga. Bæturnar miðast almennt við tímabil óvinnufærni og fjárhæð þeirra fer meðal annars eftir því hvort tjónþoli er rúmfastur. Við veitum lagalega ráðgjöf um réttinn til bóta og aðstoðum við að meta og fylgja eftir kröfunni.