Miski/Varanlega læknisfræðileg örorka
Tjónþolar kunna að verða fyrir miska og eiga þá rétt á að fá greiddar bætur vegna þess. Miskabætur eru bætur fyrir ófjárhagslegt tjón. Varanlegan miska skal meta til stiga og við mat á miska fara matsmenn eftir miskatöflu sem er tafla með leiðbeiðandi viðmiðum. Í töflunni kemur þannig fram mat á því hvað tilgreint líkamstjón eigi að meta til margra miskastiga.