Frítímaslys
Hefur þú orðið fyrir slysi í frítíma?
Margir gera sér ekki grein fyrir því að þeir kunna að eiga rétt á bótum þótt slysið hafi ekki orðið í vinnu.
Réttur til bóta vegna frítímaslysa fer fyrst og fremst eftir því hvaða tryggingar eru í gildi hverju sinni og hvort einhver annar beri ábyrgð á slysinu.
Ertu með slysatryggingu sem nær til frítíma?
Bætur vegna frítímaslysa byggja oft á samningsbundnum tryggingum.
Mikilvægt er að kanna hvort þú hafir sérstaklega slysatryggt þig vegna slysa sem kunna að verða í frítíma.
Slíkar tryggingar eru oft innifaldar í:
Fjölskyldutryggingum.
Heimilistryggingum.
Almennum slysatryggingum.
Öðrum persónutryggingum.
Getur þú átt rétt úr slysatryggingu launþega?
Já, í sumum tilvikum.
Þótt slys verði í frítíma getur tjónþoli átt rétt á bótum úr slysatryggingu launþega samkvæmt kjarasamningi.
Í slíkum tilvikum er starfsmaður tryggður af vinnuveitanda sínum og því mikilvægt að kanna:
Hvaða kjarasamningur gildir.
Hvaða tryggingar vinnuveitandi hefur tekið.
Hvort slysið falli undir skilyrði tryggingarinnar.
Við metum þessi atriði og könnum hvort bótaréttur sé fyrir hendi.
Getur einhver annar borið ábyrgð á slysinu?
Stundum er það ekki aðeins tryggingin þín sem skiptir máli.
Ef annar aðili ber ábyrgð á slysinu, að hluta eða í heild, getur þú jafnframt átt rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu viðkomandi aðila.
Það getur til dæmis átt við ef:
Eigandi fasteignar sinnir ekki hálkuvörnum.
Aðili veldur slysi með gáleysi.
Búnaður eða aðstæður sem annar ber ábyrgð á valda slysinu.
Í slíkum tilvikum getur komið til greina að gera bótakröfu á hendur tryggingafélagi þess sem ber ábyrgð á tjóninu.
Hvaða slys teljast frítímaslys?
Dæmi um frítímaslys eru meðal annars:
Hálkuslys.
Slys á rafhlaupahjóli.
Slys á reiðhjóli.
Slys við heimilisstörf.
Fall á heimili eða í frístundum.
Slys við íþróttir eða aðra tómstundaiðkun.
Af hverju er mikilvægt að kanna bótarétt sinn?
Eftir frítímaslys getur verið réttur til bóta úr fleiri en einni tryggingu eða gagnvart fleiri en einum aðila.
Því er mikilvægt að kanna:
Hvaða tryggingar voru í gildi þegar slysið varð.
Hvort vinnuveitandi hafi tryggt starfsmanninn sérstaklega.
Hvort annar aðili beri ábyrgð á tjóninu.
Hvaða bætur kunna að vera fáanlegar vegna afleiðinga slyssins.
Í mörgum tilvikum getur slíkt haft veruleg áhrif á bótarétt tjónþola og því borgar sig alltaf að láta kanna málið nánar.