Varanleg örorka
Þegar bætur eru greiddar skv. skaðabótalögum nr. 50/1993 eiga þeir sem verða fyrir líkamstjóni rétt á að fá bætur vegna varanlegrar örorku sem þeir kunna að verða fyrir.
Með orðinu örorka er átt við varanlega skerðingu á getu til að afla vinnutekna. Oft á tíðum getur líkamstjón haft áhrif átekjuöflunarfærni tjónþola til framtíðar. Getur sú tekjuskerðing komið fram í mismunandi mynd. Tekjuskerðingin getur komið fram þegar í stað með minni getu til að vinna og afla tekna eða minni getu til að vinna yfirvinnu. Jafnframt kann að vera líklegt að líkamstjónið muni hafa meiri áhrif í framtíðinni á tekjuöflunarfærni t.d. með því að tjónþolinn þurfi að minnka við sig vinnu fyrr á lífsleiðinni en ef ekki hefði komið til líkamstjónsins eða tjónþolinn þurfi að hætta störfum fyrr..