Hefur þú lent í slysi?
TORT - INNHEIMTA SLYSABÓTA
Lögmannsstofa sem sérhæfir sig í slysabótum og skaðabótum
Við veitum einstaklingum sem hafa orðið fyrir slysi sérhæfða lögfræðiaðstoð og hjálpum þeim að sækja þær slysabætur sem þeir eiga rétt á.
Slys geta haft mikil áhrif á líf fólks og leggjum við hjá lögmannsstofunni TORT metnað í persónulega og faglega lögfræðiþjónustu.
Í hvers konar slysi lentir þú?
-

Umferðarslys
Bótaréttur tjónþola vegna líkamstjóns í umferðarslysum er mjög ríkur. Það er útbreiddur misskilningur að ökumaður bifreiðar í órétti eigi ekki rétt á bótum vegna líkamstjóns sem hann verður fyrir.
-

Vinnuslys
Samkvæmt kjarasamningum ber vinnuveitanda að slysatryggja starfsmenn sína vegna vinnuslysa. Tildrög vinnuslyss hafa ekki áhrif á rétt til bóta úr slysatryggingu launþega.
-

Hjólreiðaslys
Það fer eftir því hvenær og hvernig slys hjólreiðamanns atvikast úr hvaða tryggingu hann geti átt bótarétt.
-

Sjóslys
Þeir sem verða fyrir líkamstjóni við sjómannstörf á sjó eiga víðtækari bótarétt en þeir sem slasast við störf í landi.
-

Frítímaslys
Hér er um samningsbundna tryggingu að ræða. Máli skiptir hvort tjónþoli hefur slysatryggt sig sérstaklega vegna tjóns sem hann gæti orðið fyrir í frítíma.
-

Annað
Lögmenn TORT annast einnig hagsmunagæslu þeirra sem t.d. hafa lent í íþróttaslysum, líkamsárás og læknamistökum, svo dæmi séu nefnd.
Lögfræðilegt ferli slysamála
TORT var ein af fyrstu lögmannsstofum á Íslandi til að sérhæfa sig í innheimtu slysabóta.
Lögmannsstofan er rekin af lögmönnum með yfir allt að 40 ára reynslu á sviði skaðabótaréttar.
Fyrirtækið hefur frá stofnun þess árið 2007 sérhæft sig á þessu sviði lögfræðinnar og annast hagsmunagæslu fyrir fjölda einstaklinga.
ALGENGAR SPURNINGAR
-
Í kjölfar slysa geta vaknað spurningar um bótarétt, vátryggingar og næstu skref. Ferlið við að sækja bætur getur verið tímafrekt, flókið og valdið óvissu. Mikilvægt er að ráðfæra sig við sérfræðinga sem geta veitt þér lögfræðilega ráðgjöf um rétt þinn til bóta.
Markmið okkar hjá TORT lögmönnum er að einfalda ferlið fyrir umbjóðendur okkar eins og kostur er, þannig að þeir geti einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli: að ná bata.
-
Hér er yfirlit yfir helstu skrefin þegar sótt er um bætur vegna slyss:
1. Tilkynning um slys
Fyrsta skrefið er að tilkynna slysið til viðeigandi tryggingafélags. Sá sem fyrir slysinu verður tilkynnir líkamstjónið sjálfur, en ef það hefur ekki verið gert, aðstoða lögmenn TORT þig við að koma tilkynningunni á framfæri.
2. Fyrsta gagnaöflun
Trygigingafélög krefjast læknisgagna til að meta bótaskyldu. Lögmenn TORT sjá um að lögfræðilega gagnaöflun, þar á meðal öflun vottorða frá þeirri heilbrigðisstofnun sem þú leitaðir fyrst til eftir slysið.
👉 Þess vegna er mikilvægt að hafa leitað til læknis sem fyrst.3. Afstaða tryggingafélags
Þegar fyrstu gögn hafa borist senda lögmenn TORT þau áfram til tryggingafélagsins. Í framhaldinu tekur tryggingafélagið afstöðu til þess hvort bótaskylda sé til staðar í málinu.
4. Bótaskylda
Ef tryggingafélagið samþykkir bótaskyldu verður mögulegt að óska eftir endurgreiðslu á útlögðum kostnaði vegna slyssins. Lögmannsstofan sér um að innheimta útlagðan kostnað fyrir umbjóðendur sína.
5. Stöðugleikapunktur
Eftir að bótaskylda hefur verið viðurkennd er gagnaöflun yfirleitt sett á bið þar til svokallaður stöðugleikapunktur næst. Oftast er miðað við að hefja næsta stig málsins um það bil 10 mánuðum eftir slysdag, þegar ástandið hefur náð ákveðnum stöðugleika.
6. Gagnaöflun lokagagna
Þegar stöðugleikapunkti er náð liggur betur fyrir hvort um varanlegar afleiðingar er að ræða. Þá hefst frekari gagnaöflun, þar sem lögmenn TORT óska eftir lokagögnum frá þeim meðferðaraðilum sem þú hefur leitað til vegna slyssins.
7. Matsferli
Að lokinni gagnaöflun er útbúin heildarsamantekt gagna fyrir matsmenn sem meta varanlegar afleiðingar slyssins. Matsferlið sjálft tekur yfirleitt um 6 mánuði og er mikilvægur þáttur í því að ákvarða bætur.
8. Uppgjör slysabóta
Í lok ferlisins senda lögmenn TORT bótakröfu byggða á niðurstöðu matsins. Í flestum tilfellum næst samkomulag við tryggingafélagið um greiðslu bóta. Ef samkomulag næst ekki, sjá lögmenn TORT um að höfða dómsmál til að tryggja bótarétt þinn.
Við erum með þér alla leið.
Lögfræðilegt ferli eftir slys getur verið yfirþyrmandi, en þú þarft ekki að standa í því einn. Hjá lögmönnum TORT er markmiðið að leiðbeina þér í gegnum hvert skref með skýrum hætti, draga úr óvissu og tryggja að þú fáir þá lögfræðiaðstoð og bætur sem þú átt rétt á.
-
Við ráðleggjum fólki að ráðfæra sig hið fyrsta við lögmann í kjölfar slyss. Bætur er hins vegar hægt að sækja í nokkur ár eftir slys.
Þegar um er að ræða vinnuslys eða frítímaslys þá er almenna reglan sú að bótaréttur fyrnist á fjórum árum. Í umferðarslysum fyrnist bótaréttur á 10 árum.
Það er hins vegar aðrir frestir sem koma til skoðunar eins og t.d. tilkynningafrestur og matsfrestur.
Tilkynningafrestur → Einstaklingar sem lenda í slysi þurfa í sumum tilvikum að tilkynna líkamstjónið innan árs frá því að þeim mátti vera tjónið ljóst til tryggingafélags.
Matsfrestur → Þegar um er að ræða frítímaslys og vinnuslys þá þarf endanlegt örorkumat almennt að liggja fyrir innan þriggja ára frá því slys verður og er því svokallaður matsfrestur á þeim málum.
-
Í flestum tilfellum þarf tjónþoli ekki að leggja út neinn kostnað, hvorki vegna gagnaöflunar né vegna lögmannsaðstoðar.
Ef til innheimtu bóta kemur, þá er þóknun TORT dregin af bótunum í lok máls. Í mörgum tilfellum greiðist þóknun lögmanns að mestu leyti af tryggingafélaginu, t.d. í umferðarslysum.
Ef ekki fást greiddar bætur þá ber tjónþoli í flestum tilfellum engan kostnað af.
Það kostar ekkert að hafa samband og við bjóðum upp á frítt viðtal.
-
Á fyrsta fundi með lögmanni er nauðsynlegt að upplýsa hvar og hvenær atvikið átti sér stað og hvenær leitað var fyrst til læknis.
-
Lögmannsstofan aðstoðar þig við innheimtu útlagðs kostnaðar.
Í flestum tilfellum á tjónþoli rétt á að fá útlagðan kostnað endurgreiddan. Sá kostnaður greiðist eftir frumritum af viðkomandi tryggingafélagi þegar bótaskylda hefur verið samþykkt.
Ef um frítímaslys er að ræða er yfirleitt hámark á endurgreiðslu á útlögðum kostnaði samkvæmt vátryggingaskírteini.
Útlagður kostnaður greiðist venjulega fram að því að mál fer í matsferli.
-
Útreikningur bóta þegar um skaðabótaskylt tjón er að ræða fer eftir ákvæðum skaðabótalaga nr. 50/1993. Þá er horft til ýmissa þátta, s.s. aldurs, launa síðustu ára fyrir slys og niðurstöðu matsgerðar.
Útreikningur bóta þegar um vinnuslys eða frítímaslys er að ræða fer aftur á móti eftir þeirri vátryggingu sem til staðar er á tjónsdegi.
Ekki er hægt að fullyrða hversu háar bætur verða fyrr en mat á afleiðingum slyss liggur fyrir.
-
Örorkumat er mat á afleiðingum slyss á milli þín og þess tryggingafélags sem á í hlut. Það mat á ekkert skylt við mat á örorku hjá Tryggingastofnun.
-
Lagalegur rekstur slysamála tekur mislangan tíma. Öflun nauðsynlegra gagna er umfangsmikil og tímafrek og erfitt að segja til um hversu langan tíma það tekur að innheimta bætur. Í fyrsta lagi er hægt að meta varanlegar afleiðingar slyss þegar ár er liðið frá slysi, en það fer þó eftir atvikum hverju sinni.
-
Já, það er mjög mikilvægt.
Læknisskoðun tryggir annars vegar að þú fáir rétta meðferð og hins vegar að meiðsli séu skjalfest strax. Slík skjalfesting getur skipt sköpum þegar kemur að lögfræðilegri vinnu við að sækja slysabætur frá tryggingafélagi. -
Slysabætur eru greiðslur sem þú getur átt rétt á ef þú verður fyrir líkamstjóni vegna slyss. Þær geta meðal annars náð yfir:
útlagðan kostnað
miskabætur
bætur vegna varanlegrar örorku
-
Sérhæfing í slysabótamálum og skaðabótamálum.
Mikil þekking á skaðabótarétti.
Mikil reynsla af lögfræðilegum ágreiningsmálum um bætur og málflutningi fyrir dómstólum.
Fagleg, skýr og heildstæð lögfræðiráðgjöf frá upphafi til loka máls.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi og vilt fá skýra mynd af réttarstöðu þinni, hafðu samband við TORT og fáðu faglega og skýra lögfræðiráðgjöf um rétt þinn til slysabóta.
-
Það er útbreiddur misskilningur að ökumaður bifreiðar sem er í órétti eigi ekki rétt á bótum vegna líkamstjóns sem hann verður fyrir.
Bótaréttur vegna líkamstjóns í umferðarslysi er til staðar þótt þú hafir verið í órétti.
Það kostar ekkert að hafa samband
Sendu okkur fyrirspurn eða hringdu í síma 511-5008. Lögmenn TORT fara yfir slysamálið með þér, útskýra réttindi þín og meta hvort réttur til bóta sé til staðar.