Við hjá Tort erum ánægð að tilkynna ykkur að Jónas Ástþór Hafsteinsson hefur gengið til liðs við okkur.
Jónas er lögfræðingur en hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2022. Jónas starfaði árin 2015-2016 hjá Tryggingamiðstöðinni hf. og í sumarstarfi hjá Íslandsbanka hf. sumrin 2017 og 2018. Með laganámi starfaði Jónas sem laganemi hjá Íbúðalánasjóði sumarið 2019 og sem laganemi í lögfræðideild Íslandsbanka hf. samhliða námi á árunum 2020-2022. Að útskrift lokinni hóf Jónas störf sem lögfræðingur hjá Íslandsbanka hf. og starfaði þar til aprílmánaðar 2023 þegar hann hóf störf hjá Tort og Forum lögmönnum.
Við hjá Tort bjóðum Jónas hjartanlega velkominn til starfa.