Mikilvægur sigur fyrir námsmenn í Hæstarétti – bætur miðaðar við framtíðartekjur

Með dómi Hæstaréttar 14. október 2026 í máli nr. 4/2026 var fallist á kröfu umbjóðanda TORT um að bætur vegna varanlegrar örorku eftir umferðarslys skyldu miðast við líklegar framtíðartekjur hennar sem tanntæknis í stað lágmarkslauna samkvæmt skaðabótalögum.

Dómurinn hefur verulegt fordæmisgildi fyrir námsmenn sem verða fyrir líkamstjóni áður en þeir ljúka námi og hefja störf á vinnumarkaði.

Umbjóðandi TORT varð fyrir umferðarslysi í október 2019 þegar hún var 26 ára og stundaði nám í tanntækni. Hún hlaut áverka á hálsi, brjóstbaki og öxl og var varanleg örorka hennar metin 6%.

Tryggingafélagið Vörður viðurkenndi bótaskyldu vegna slyssins en miðaði bætur fyrir varanlega örorku við lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Umbjóðandi TORT taldi hins vegar að miða bæri við meðaltekjur tanntækna, enda hefði verið fyrirsjáanlegt þegar slysið varð að hún myndi ljúka námi og hefja störf í þeirri grein.

TORT höfðaði mál fyrir hönd tjónþola og féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á kröfu hennar. Landsréttur sneri hins vegar niðurstöðunni við og sýknaði tryggingafélagið af frekari greiðslukröfu. Málinu var í kjölfarið áfrýjað til Hæstaréttar, sem veitti áfrýjunarleyfi þar sem úrlausn málsins kynni að hafa verulegt almennt gildi.

Í dómi Hæstaréttar var sérstaklega fjallað um þá staðreynd að lágmarkslaunaviðmið skaðabótalaga hefur ekki fylgt almennri launaþróun frá árinu 1999. Þannig hefðu lágmarkslaun samkvæmt lögunum numið um 3,4 milljónum króna á ári í tilviki tjónþola, en um 6,7 milljónum króna ef viðmiðið hefði fylgt almennri launaþróun.

Hæstiréttur taldi að vegna þessarar þróunar yrði að gera minni kröfur til tjónþola um sönnun þess að annað tekjuviðmið væri réttara við mat á líklegum framtíðartekjum.

Við mat á stöðu umbjóðanda TORT leit Hæstiréttur meðal annars til þess að hún hafði lokið meira en helmingi náms síns þegar slysið varð, námsframvinda hennar hafði verið eðlileg og hún lauk náminu aðeins sjö mánuðum eftir slysið. Taldi rétturinn því nægilega sýnt fram á að námslok hennar hefðu verið fyrirsjáanleg.

Með dómi Hæstaréttar var niðurstöðu Landsréttar því hrundið og Vörður dæmdur til að greiða umbjóðanda TORT bætur miðað við meðaltekjur tanntækna, samtals tæpar 7 milljónir króna auk vaxta og dráttarvaxta, að frádregnum áður greiddum bótum.

Dómurinn markar mikilvæg tímamót í réttarstöðu námsmanna sem verða fyrir slysum. Af niðurstöðunni leiðir að ekki verður eingöngu horft til þess hversu stórum hluta náms tjónþoli hefur lokið þegar slys verður, heldur þarf jafnframt að líta til eðlis námsins, námsframvindu og annarra aðstæðna við mat á því hvort námslok hafi verið fyrirsjáanleg.

Niðutaðan getur því haft verulega þýðingu fyrir námsmenn sem hafa fengið örorkubætur reiknaðar út frá lágmarkslaunum þrátt fyrir að hafa stefnt að störfum sem gefa hærri tekjur.

Helgi Birgisson lögmaður flutti málið fyrir hönd umbjóðanda TORT.

Unnt er að lesa dóminn í heild sinni á heimasíðu Hæstaréttar hér.