umferðarslys

Umferðarslys

Bótaréttur tjónþola á hendur tryggingafélögum vegna líkamstjóns í umferðarslysum er mjög ríkur.

Ökumaður, farþegar, sem og aðrir sem verða fyrir líkamstjóni í bílslysi eiga að jafnaði rétt á slysabótum jafnvel þótt annað kunni að gilda um tjón á bifreiðinni sjálfri.

Þá er það útbreiddur misskilningur að ökumaður bifreiðar sem er í órétti eigi ekki rétt á bótum vegna líkamstjóns sem hann verður fyrir.

Þá er vert að minnast á það að ef bíl er ekið á hjólandi eða gangandi vegfaranda er bótaréttur viðkomandi hinn sami og farþega í ökutæki sem verður fyrir slysi.

vinnuslys

Vinnuslys

Samkvæmt kjarasamningum ber vinnuveitanda að slysatryggja starfsmenn sína vegna vinnuslysa. Starfsmenn eru einnig tryggðir af vinnuveitanda á leið sinni til eða frá vinnu.
Tildrög vinnuslyss hefur ekki áhrif á rétt starfsmanns til bóta úr slysatryggingu launþega.

Jafnframt getur vinnuveitandi borið skaðabótaábyrgð á afleiðingum vinnuslyss ef slys má rekja til saknæmrar eða ólögmætrar háttsemi vinnuveitanda eða starfsmanna á hans vegum, s.s. ef annar starfsmaður vinnuveitanda veldur slysinu, ef öryggisbúnaði er ábótavant o.s.frv.

Dæmi um vinnuslys eru hálkuslys á beinni leið til eða frá vinnu, slys við ýmis tækjabúnað á vinnustað, fall í stiga o.s.frv.

hjólaslys - slys á rafmagnshlaupahjólum

Hjólaslys/Slys á rafmagnshlaupahjóli

Tryggingafélög bjóða upp á ýmis konar fjölskyldutryggingar og í mörgum þeirra er slysatrygging í frítíma innifalin. Slík trygging greiðir bætur vegna slysa sem hjólreiðamenn verða fyrir í frístundum á götuhjóli og þeir sem eru á rafmagnshlaupahjólum. Afreksmenn í hjólreiðum eða fjallahjólreiðamenn þurfa þó að bæta við sig sérstakri viðbótartryggingu.

Þeir sem lenda í reiðhjólaslysi í frítíma eiga yfirleitt lakastan rétt og í sumum tilvikum jafnvel engan. Þá gilda oft einungis framangreindar frítímaslysatryggingar sem eru innifaldar í fjölskyldutryggingum tryggingafélaga. Þó geta slysatryggingar launþega gilt, ef hinn slasaði fellur undir kjarasamning sem gerir ráð fyrir bótum í frítíma, eða slysið gerist á leið viðkomandi til eða frá vinnu. Ef viðkomandi er með almenna slysatryggingu gildir hún um reiðhjólaslys/slys á rafmagnshlaupahjóli í frítíma sem og í vinnu.

Þó er vakin athygli á því að ef aðili verður fyrir reiðhjólaslysi/slysi á rafmagnshlaupahjóli í frítíma, getur það verið bótaskylt úr ábyrgðartryggingu, ef einhver annar ber ábyrgð á slysinu, beint eða óbeint. Ef aðili slasast í umferðarslysi, t.d. í árekstri við bíl, mótorhjól eða annað skráningarskylt ökutæki, getur hann þannig átt rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu ökutækisins.

sjóslys

Sjóslys

Mikilvægt er að þeir sjómenn sem verða fyrir líkamstjóni við sjómannsstörf kanni rétt sinn til bóta.

Sjómenn eru „kaskótryggðir“ við störf sín á sjó og fá greiddar fullar bætur fyrir líkamstjón sem þeir verða fyrir við vinnuslys, óháð því hver aðdragandi slyss kann að vera. Sjómenn þurfa þar af leiðandi ekki að sýna fram á að slysið megi rekja til atvika sem vinnuveitandi ber ábyrgð á, t.d. að aðbúnaður hafi ekki verið í lagi, tæki hafi verið biluð eða gölluð eða vegna mistaka annarra starfsmanna. Sjómaður sem verður fyrir slysi við störf sín á sjó getur þannig átt bótarétt þrátt fyrir að hafa ollið slysinu sjálfur.    

frítímaslys

Frítímaslys

Hér er um samningsbundna tryggingu að ræða. Máli skiptir hvort tjónþoli hefur slysatryggt sig sérstaklega vegna tjóns sem hann gæti orðið fyrir í frítíma. Slíkar tryggingar eru oft innifaldar í svokölluðum fjölskyldutryggingum/heimilistryggingum og í almennum slysatryggingum.

Jafnvel kann tjónþoli að eiga rétt úr slysatryggingu launþega á grundvelli kjarasamninga, enda þótt slys verði í frítíma. Þá er tjónþoli sérstaklega tryggður af vinnuveitanda. Við könnum þetta fyrir tjónþola.

Þá kann einhver annar en tjónþoli að bera ábyrgð á tjóninu að hluta eða öllu leyti og kann tjónþoli því að eiga bótakröfu á hendur tryggingafélagi þess aðila.

Dæmi um frítímaslys eru hálkuslys, slys á rafhlaupahjóli, slys á reiðhjóli, slys við ýmis heimilisstörf o.s.frv.

önnur slys og slysabætur

Annað

Íþróttaslys gerast því miður alltof oft og oft á tíðum veit iðkandi ekki að hann getur átt rétt á bótum vegna afleiðinga slyssins. Þær tryggingar sem koma þá til skoðunar eru t.d. trygging hjá því íþróttafélagi sem viðkomandi æfir með, slysatrygging hjá Sjúkratryggingum Íslands og almenn slysatrygging viðkomandi. Hjá Sjúkratryggingum Íslands eru það íþróttafólk sem orðið er 16 ára og tekur þátt í íþróttaiðkunum og slasast við æfingar, sýningar eða keppni. Ef íþróttafólk er yngri en 16 ára getur komið til skoðunar trygging sveitarfélags. Dæmi um íþróttaslys eru tækling í knattspyrnu, höfuðáverki eftir samstuð eða skot í höfuð o.s.frv.

Ef einstaklingur hefur orðið fyrir líkamsárás getum við einnig aðstoðað með innheimtu bóta.

Læknamistök/Sjúklingatryggingaratburður - Ef þú hefur orðið fyrir tjóni vegna rannsóknar eða meðferðar á sjúkrahúsi, heilsugæslu eða heilbrigðisstofnun máttu endilega hafa samband og við könnum hvort við getum aðstoðað þig með málið.