Guðbjörg í viðtali á RÚV í þættinum Þetta helst.

Fáðu þér lögfræðing til að sækja slysabætur.

Frábært viðtal við Guðbjörgu lögmann hér hjá TORT í þættinum Þetta helst á RÚV þar sem hún veitir góð ráð og leiðir hlustendur á mannamáli í gegnum frumskóg slysatrygginga.

Ef þú hefur orðið fyrir slysi sem heldur þér frá daglegum störfum, veldur þér sársauka í lengri tíma og krefst þess að þú leitir þér læknismeðferðar, þá getur verið að þú eigir rétt á bótum. Þó þú sért með sæmilegar tryggingar er tryggingafélagið þitt ekkert endilega alltaf hjálplegt þegar þú þarft mest á því að halda. Guðbjörg Benjamínsdóttir hæstaréttarlögmaður veitir góð ráð og leiðir okkur á mannamáli í gegnum frumskóg slysatrygginga. Þóra Tómasdóttir talaði við hana.