Í dag féll dómur í Hæstarétti Íslands í máli sem Þorsteinn Einarsson lögmaður hjá TORT rak fyrir skjólstæðing lögmannsstofunnar. Aðilar málsins stóðu sameiginlega að mati hins slasaða á afleiðingum umferðarslyss. Aðila greindi á um eðli þeirra áverka sem hinn slasaði hlaut á hægri öxl í slysinu. Skjólstæðingur TORT taldi afleiðingarnar vanmetnar í matsgerð og freistaði …
Þann 3. maí síðastliðinn féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður hjá TORT rak fyrir skjólstæðing lögmannsstofunnar. Tryggingafélagið ákvað að una dómnum og er hann því endanlegur. Málavextir eru þeir að skjólstæðingur TORT slasaðist alvarlega í vinnuslysi þegar timburvinnupallur í lyftuopi féll undan honum og hann féll niður um nokkra metra. …
Í dag féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem Viktoría Hilmarsdóttir lögmaður hjá TORT rak fyrir skjólstæðing lögmannsstofunnar. Tryggingafélagið ákvað að una dómi héraðsdóms þar sem viðurkenndur var réttur hins slasaða úr ábyrgðartryggingu vinnuveitanda vegna líkamstjóns sem hann hlaut í vinnuslysi er hann féll fram af þaki. Samkvæmt niðurstöðu dómsins ber vinnuveitandi ríka ábyrgð …
Í dag féll dómur í Hæstarétti Íslands í máli sem Þorsteinn Einarsson lögmaður hjá TORT rak fyrir skjólstæðing lögmannsstofunnar. Málavextir eru nánar þeir að skjólstæðingur TORT varð fyrir slysi þegar vinnupallur hrundi. Hinn slasaði var starfsmaður A ehf. sem hafði tekið að sér verk í fiskiskipi í eigu B. ehf. Notast var við vinnupall í …
Tryggingafélag hafnaði umbjóðanda TORT um bætur úr slysatryggingu vegna alvarlegs sjúkdóms sem hann fékk í kjölfar slyss. Hélt félagið því fram að hinn slasaði ætti aðeins rétt á bótum vegna slyssins en ekki sjúkdómsins þar sem hann væri ekki afleiðing slyssins. Héraðsdómur hafnaði með öllu rökum tryggingafélagsins og dæmdi bætur þar sem slysið hefði verið …
Hver er skaðabótaskylda stjórnvalda og landeigenda gagnvart ferðamönnum? http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP51416
Skjóstæðingur TORT hafði í gær sigur í Hæstarétti gegn ensku tryggingafélagi, sem hafði neitað honum um bætur úr sjúkratryggingu. Honum voru dæmdar um 20 milljónir króna í bætur. https://www.haestirettur.is/domar/domur/?id=f33a24b0-fd7f-4292-aa1e-37280b52e162
Erlendum skjólstæðingi TORT lögmannsstofu voru dæmdar fullar skaðabætur vegna alvarlegs vinnuslyss sem hann varð fyrir árið 2012 er hann féll ásamt íslenskum samstarfsmanni sínum um 6 metra af þaki fiskimjölsverksmiðju. Var tjónþoli metinn með 85% örorku vegna slyssins. Tjónþoli og samstarfsmaður hans voru báðir án allra fallvarna á þakinu. Hafði tryggingafélag vinnuveitanda fallist á fulla …
Skjólstæðingi TORT lögmannsstofu var með dómi héraðsdóms dæmdar bætur vegna áverka sem hann hlaut á baki í Ribsafari. Tekist var á um hvort slysið væri bótaskylt úr ábyrgðartryggingu fyrirtækisins sem bauð upp á siglinguna. Starfsmenn fyrirtækisins þóttu hafa sýnt af sér bótaskylda háttsemi með því að hafa ekki beinlínis varaðir við því að hættulegt væri …
Hreingerningarfyrirtæki var í gær dæmt til að greiða konu bætur vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir á vinnustað sínum, á Grundartanga, í maí 2012. Slysið varð þegar geitungur kom fljúgandi að konunni, henni brá og hún snéri sér snöggt undan og féll við það um poka með þvotti sem var í gangveginum. Hlaut hún áverka …